Skipta yfir í vöruupplýsingar
1 af 1

Amphora Aromatics

Sedrusviðar ilmkjarnaolía 10ml

Sedrusviðar ilmkjarnaolía 10ml

Verð 1.730 kr
Verð 0 kr Söluverð 1.730 kr
Tilboð Uppselt
Með VSK.

Sedrusviður (Cedarwood - Juniperus virginiana)

Helsta virkni sedrusviðarolíu er að hún er vatnslosandi og er því hjálpleg við bjúg og vandamálum í nýrum. Hún er einnig samandragandi, getur því reynst gagnleg fyrir opna og feita húð og eins má blanda henni í sjampó til að vinna á móti flösu og fitu í hári. Sedrusviður hefur ljúfan jarðar ilm og getur haft róandi, kvíðastillandi og streitulosandi áhrif.
Olían er unnin með gufueimingu og tónninn er lágtóna.

Notkun:
Hægt er að setja olíuna í ilmolíubrennara, setja þá 3-5 dropa af olíunni í vatn áður en kveikt er á kertinu undir. Fyrir rafdrifna ilmolíudreifara fylgið leiðbeiningum framleiðanda. Magn olíu sem notuð er fer eftir stærð rýmisins en gott er að byrja á 4-5 dropum og auka svo við ef þörf er á.
Fyrir blöndun á líkamsolíu þá er góð þumalputtaregla að setja 20 dropa af Ilmkjarnaolíu út í 100 ml af grunnolíu.

Varúð:
Til að forðast ertingu eða ofnæmisviðbrögð er gott að setja einn dropa af ilmkjarnaolíunni beint á húðina til að sjá hvernig hún bregst við en við mælum með að blanda alltaf ilmkjarnaolíum út í grunnolíu áður en hún er borin á húð til að forðast ertingu. Geymið ilmkjarnaolíuna þar sem börn ná ekki til og fjarri sólarljósi. Ef olían berst í augu er best að setja t.d. ólífuolíu fyrst í augað og skola síðan með vatni. Leitið til læknis ef erting hættir ekki. Olían er eingöngu ætluð til útvortis notkunar.
Fyrir frekari upplýsingar um heilunareiginleika og notkun iIlmkjarnaolía er best að leita til Ilmkjarnaolíufræðings.

Uppruni: Bandaríkin
Pakkað í Bretlandi í glerflösku með áskrúfuðum plasttappa.
Vottað eftir IFRA stöðlum (IFRA - International Fragrance Association)

Sjá allar upplýsingar