Skipta yfir í vöruupplýsingar
1 af 2

Amphora Aromatics

Lavender ilmkjarnaolía frá Frakklandi 10 ml. Lífræn Amphora Aromatics

Lavender ilmkjarnaolía frá Frakklandi 10 ml. Lífræn Amphora Aromatics

Verð 2.345 kr
Verð Söluverð 2.345 kr
Tilboð Uppselt
Með VSK.

Lavender  (Lavandula Angustifolia)

Lavender er sú ilmkjarnaolía sem hefur hvað fjölbreyttasta virkni og ætti að vera partur af skyndihjálparkassa hvers heimilis. Hún hefur slakandi, græðandi og sótthreinsandi eiginleika og blandast vel með flest öllum öðrum ilmkjarnaolíum, sérstaklega Piparmyntu, Rósmarín, Eucalyptus, Rós, Sítrónu, Salvíu, Appelsínu og Tea tree.

Olían er unnin með gufueimingu  og tónninn er hátónn.

Lavender blandast vel með t.d. Piparmyntu, Rósmarín, Eucalyptus, Geranium, Rós, Tea Tree, Appelsínu og Sítrónu.

Lavender kemur upprunalega frá löndunum við Miðjarðarhafið og vex um mest alla Evrópu. Þekktasta olían kemur frá Búlgaríu, Frakklandi og Englandi.

Notkun

Lavender má nota við nánast hvaða kvilla sem er en þekktust er hún róandi eiginleika sína og má t.d. setja hana í ilmolíudreifara eða setja nokkra dropa í lófann og á fæturna fyrir svefn. Lavender má einnig setja á brunasár og smáskurði til að flýta fyrir gróanda og einnig er gott að nota hana eftir skurðaðgerðir til að hjálpa til við að koma í veg fyrir ör. Hún er líka bakteríudrepandi og getur því verið gagnleg við kvefi. Einnig hefur hún reynst vel sem skordýrafæla.
Hægt er að setja olíuna í ilmolíubrennara, setja þá 3-5 dropa af olíunni í vatn áður en kveikt er á kertinu undir. Fyrir rafdrifna ilmolíudreifara fylgið leiðbeiningum framleiðanda. Magn olíu sem notuð er fer eftir stærð rýmisins en gott er að byrja á 4-5 dropum og auka svo við ef þörf er á.
Fyrir blöndun á líkamsolíu þá er góð þumalputtaregla að setja 20 dropa af Ilmkjarnaolíu út í 100 ml af grunnolíu.

Varúð

Til að forðast ertingu eða ofnæmisviðbrögð er gott að setja einn dropa af ilmkjarnaolíunni beint á húðina til að sjá hvernig hún bregst við en við mælum með að blanda alltaf ilmkjarnaolíum út í grunnolíu áður en hún er borin á húð til að forðast ertingu.  Geymið ilmkjarnaolíuna þar sem börn ná ekki til og fjarri sólarljósi. Ef olían berst í augu er best að setja t.d. ólífuolíu fyrst í augað og skola síðan með vatni. Leitið til læknis ef erting hættir ekki.  Olían er eingöngu ætluð til útvortis notkunar. 

Fyrir frekari upplýsingar um heilunareiginleika og notkun iIlmkjarnaolía er best að leita til Ilmkjarnaolíufræðings.

Uppruni: Frakkland

Pakkað í Bretlandi í glerflösku með áskrúfuðum plasttappa. 

Vottað eftir IFRA stöðlum (IFRA - International Fragrance Association

 

Sjá allar upplýsingar