Skipta yfir í vöruupplýsingar
1 af 1

Amphora Aromatics

Frankincense ilmkjarnaolía 10 ml. Lífræn Amphora Aromatics

Frankincense ilmkjarnaolía 10 ml. Lífræn Amphora Aromatics

Verð 3.575 kr
Verð 0 kr Söluverð 3.575 kr
Tilboð Uppselt
Með VSK.

Frankincense  (Boswellia serrata)

Frankincense er róandi og getur reynst vel við kvíða og oföndun. Hún getur líka haft góð áhrif gegn astma, er vinsæl í hugleiðslu og einnig er Frankincense þekkt fyrir bólgueyðandi áhrif.

Olían er unnin með gufueimingu úr kvoðu Boswellia trésins og tónninn er grunntónn.

Frankincense blandast vel með Benzoin, Sandalvið, Lavender, Myrru, Furu, Appelsínu, Rós, Bergamot og Sítrónu

í Egyptalandi til forna var Frankincense mikið notuð í ilmvötn, andlitskrem og maska. Einnig var hún verðmæt sem gjaldmiðill og er þekkt sem ein af Biblíu olíunum. Frankincense hefur verið mikið notuð bæði sem olía og reykelsi við tilbeiðslu og hugleiðslu vegna þeirra eiginleika sinna að geta hægt á öndun og framkalla hugarró.

Notkun

Vegna eiginleika sinna til að hægja á öndun getur Frankincense olían reynst gagnleg við t.d. astma og má þá annað hvort setja dropa í lófann og anda olíunni þannig beint að sér eða setja nokkra dropa í grunnolíu og bera á bringu og bak. Hún getur líka reynst vel við kvíða og oföndun. Hún er líka þekkt fyrir bólgueyðandi áhrif og getur því reynst vel í nuddolíur fyrir vöðvabólgu og gigtarverki. Frankincense getur líka reynst vel fyrir eldri húð í krem og andlitsmaska, getur haft þéttandi og styrkjandi áhrif á húðina. Einnig getur reynst gagnlegt að anda að sér Frankincense ilmi fyrir hugleiðslu vegna róandi eiginleika hennar.
Hægt er að setja olíuna í ilmolíubrennara, setja þá 3-5 dropa af olíunni í vatn áður en kveikt er á kertinu undir. Fyrir rafdrifna ilmolíudreifara fylgið leiðbeiningum framleiðanda. Magn olíu sem notuð er fer eftir stærð rýmisins en gott er að byrja á 4-5 dropum og auka svo við ef þörf er á.
Fyrir blöndun á líkamsolíu þá er góð þumalputtaregla að setja 20 dropa af Ilmkjarnaolíu út í 100 ml af grunnolíu.

Varúð

Til að forðast ertingu eða ofnæmisviðbrögð er gott að setja einn dropa af ilmkjarnaolíunni beint á húðina til að sjá hvernig hún bregst við en við mælum með að blanda alltaf ilmkjarnaolíum út í grunnolíu áður en hún er borin á húð til að forðast ertingu.  Geymið ilmkjarnaolíuna þar sem börn ná ekki til og fjarri sólarljósi. Ef olían berst í augu er best að setja t.d. ólífuolíu fyrst í augað og skola síðan með vatni. Leitið til læknis ef erting hættir ekki.  Olían er eingöngu ætluð til útvortis notkunar. 

Fyrir frekari upplýsingar um heilunareiginleika og notkun iIlmkjarnaolía er best að leita til Ilmkjarnaolíufræðings.

Uppruni: Sómalía

Pakkað í Bretlandi í glerflösku með áskrúfuðum plasttappa. 

Vottað eftir IFRA stöðlum (IFRA - International Fragrance Association

 

Sjá allar upplýsingar